Um mig og Tilgangur með Overall Life Energy
- Snæbjörn Þorgeirsson
- Sep 3, 2020
- 2 min read
Ég er að fara af stað með verkefni sem er tengt andlegri og líkamlegri heilsu sem er mín ástríða og eitthvað sem ég hef verið að stúdera núna í 10ár með hjálp frá frábærum aðilum.
Ég missti tökin á heilsunni minni alveg árið 2017 og fór í burnout og það endaði með því að ég missti tökin á sjálfum mér algjörlega.
Sem bitnaði á samskiptum mínum við ástvini, ég hugsaði ekki um mig andlega né líkamlega sem hafði slæm áhrif á heilsuna mína, hreyfði mig aðeins vegna þess að ég þurfti þess, en vildi það ekki og gerði það með einum tilgang, að ganga alveg frá mér.
Ég sökkti mig í vinnu, áfengi og vímuefni aðeins til þess að forðast sjálfan mig og alla í kringum mig því ég þoldi ekki að vera með sjálfum mér.
Sem endaði með hræðilegum afleiðingum þar sem ég var kominn svo langt frá sjálfum mér að ég þekkti mig ekki lengur né fólkið í kringum lengur og hugsaði reglulega, í allskonar aðstæðum yfir daginn, í langan tíma, og tók eftir allskonar tækifærum þar sem ég gæti gengið frá mér endanlega og þannig losað sjálfan mig og alla í kringum mig undan þjáningunni sem mér fannst ég vera.
árið 2019 fékk ég alveg nóg og tók ábyrgð á mér og mínu lífi, fór í fulla vinnu í sjálfum mér og inní vegferð batans andlega og líkamlega, sem hefur verið gríðarlega skemmtilegt en jafnframt erfiðasta ferli sem ég hef farið útí sem hefur skilað í dag mínum stærsta draum sem ég hef alltaf viljað og leitað af sem ég kalla frelsi og í dag 2020 er ég frjáls:
- Undan því að vera fórnarlamb og tek áyrgð en ber ekki ábyrgðina
-Er búinn að, og er enn að æfa mig í að fyrirgefa mér fyrir það hvernig ég kom fram við mig og alla í kringum mig.
-Ég er hér og nú og tengdur innsæi mínu, og hjarta og get myndað sterk tengsl við börnin mín, maka, vini og fólkið í mínu lífi.
-Ég er ekki hugsanir mínar og hef stjórn á hegðun minni í erfiðum aðstæðum og skynja tilfinningar mínar án þess að veita því mótspyrnu.
-Ég er gildin mín.
-Ég er heiðarlegur sama hvað og við sjálfan mig.
-Ég sé ekki aðstæður eða fólk sem gott eða slæmt.
-Ég sýni mér ást svo ég geti sýnt börnum mínum,maka og vinum og fjölskyldu ást skilirðislaust.
-ég er stuðningur við sjálfan mig og hjálpa mér og hættur að berja mig niður, því ég myndi aldrei gera það við aðra svo afhverju ætti ég þá í ósköpunum þá að gera það við sjálfan mig.
þetta er smá brot af gömlu sögunni minni og núna er ég ég að skrifa nýja sögu sem ég vil gera með því að vera fordæmi fyrir sem flesta og nýta mína reynslu og þekkingu til þess að veita öðrum ráðgjöf, aðstoð og innblástur.



Comments