Snæbjörn Þorgeirsson
Mar 24, 20217 min read
Ég vildi verða fíkill
Það var tímapunktur þegar ég var lítill strákur að ég sagði við sjálfan mig að ég ætlaði aldrei að reykja og drekka. Síðan tók...

Overall Life Energy

Snæbjörn Þorgeirsson
Menntun,reynsla og þekking
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á mannlegu eðli og hegðun, öllu því sem tengist andlegri og líkamlegri heilsu.
Það var ekki fyrr en ég var kominn á mjög slæman stað andlega og líkamlega þrátt fyrir alla mína þekkingu á heilsu, og lifði hvern dag í djupum og dimmum dal sem ég vissi engan vegin hvernig ég kæmi mér uppúr.
Einn daginn ákvað ég að fara að lesa aftur og greip strax í lesefni sem tengist andlegum málefnum og siðan skellti ég mér á podcast lestina og þetta tvennt varð til þess að ég vaknaði aftur eftir langa andlega fjarveru og fór af stað í mitt andlega og líkamlega heilsu ferðalag með það markmið að finna jafnvægi og frelsi innra með mér sem tóku mig 2ár með mikilli vinnu og skoðun.
Til að gera langa sögu stutta þá er ég í dag 25 ára 2 árum seinna í andlegu og líkamlegu jafnvægi, tek ábyrgð á mínu líífi og fyrirgef sjálfum mér, hjálpa mér upp ef ég fell í holuna og lifi hvern dag í þakklæti og fullri meðvitund sem er mitt andlega frelsi.
líkamlega þá hef ég misst 30 kg sem gerðist frekar hratt og á aðeins 6 mánuðum sem var ekki markmiðið mitt heldur var það aukaverkanir af lifstílsbreytingum og minu andlega ferðalagi, ég er meðvitaður um líkama og sál og tenginguna þar á milli.
Það sem vakti mig var lesefni, pistlar,podcöst osfrv og ég trúi á kraftinn sem býr í að vera fordæmi með einlægni og með þann tilgang að hjálpa öðrum að vakna eða veita ráðgjöf eða kenna og það er astæðan fyrir því að ég fór af stað með Overall Life Energy eftir að það var buið að vera hugmynd lengi og ótti hélt því inní hugmyndinni svo ég setti það útúr óttanum og huganum og inní veruleikann :D
Takk fyrir að velja overall life energy. Fyrir frekari upplýsingar hafðu endilega samband og við svörum eins fljótt og hægt er.