30 daga áskorun sem gjörbreytti lífinu mínu.
- Snæbjörn Þorgeirsson
- Sep 20, 2020
- 4 min read
Veturinn 2019 tók ég ákvörðun um að hætta að drekka alveg áfengi og útfrá því fór ég að skoða mínar daglegu venjur sem ég gerði daglega ómeðvitað og voru ekki í takt við markmiðið mitt né sá sem ég vil vera.
Ég skrifaði niður allt það sem ég geri dags daglega frá því að ég vakna og þangað til ég sofna um kvöldið og komst af því að ég ómeðvitað stjórnaðist af því hvernig mér leið og hvað ég borðaði og hvernig/hvort ég hreyfði mig osfrv.
Ég hafði einhvern tímann lesið mig um ákveðið prógram sem virkaði þannig að breyta venjum með því að gera 30 daga áskorun og þannig breyta gömlum úreltum venjum sem þjóna manni ekki neitt og búa til nýjar venjur.
Það sem ég breytti og ég byrjaði í lok 2019.
Hætta að drekka koffín eftir klukkan 14:00 á daginn og fara fyrr að sofa.
Vakna á undan öllum öðrum klukkan 6:15 og fara á æfingu á morgnanna.
Fasta til hádegis og borða frá 12:00 til 20:00.
Skrifa niður þakklætisdagbók og hugleiðingar dagsins á hverju kvöldi.
Gera allt tilbúið fyrir næsta dag um kvöldið eins og föt og dót sem ég þurfti að nota næsta dag.
To do lista fyrir hvern einasta dag um kvöldið og setja mér eitt markmið fyrir hvern dag sem ég hef verið að fresta.
Ég gerði þetta í 30 daga og geri þetta ennþá daginn í dag vegna þess að ég fann að þetta skilaði mér meiri árangri og vellíðan.
Að fasta til hádegis og fara á hverjum morgni á æfingu og hreyfa mig á fastandi maga, gaf mér meiri orku yfir daginn og ég varð sterkari andlega og líkamlega og einbeittari.
Að halda utan um verkefni og skipuleggja mig kvöldið áður fyrir næsta dag, gaf mér betri yfirsýn og ég áorkaði miklu meira yfir daginn og ég losnaði við þennan kvíða sem ég var að kljást við á hverjum degi.
Að hætta að drekka koffín eftir 14:00 gerði mér kleift að ná betri nætursvefn og þar af leiðandi vakna hressari og orkumeiri næsta dag.
Eftir 6 mánuði þá fann ég fyrir gríðarlegum mun bæði andlega og líkamlega.
Í dag hef ég breytt þessu aðeins og skapað mér nýjar venjur sem ég sé fyrir mér að geta haft í lífi mínu til frambúðar án þess að það sé einhver kvöð og er orðið af mínum lífsstíl í dag.
Það sem ég geri daglega til að halda mér í jafnvægi andlega og líkamlega í dag og alla daga:
Ég vakna á undan öllum öðrum heima og byrja daginn á mínum forsendum með því að fara á æfingu og síðan hugleiða til þess að staðsetja mig algjörlega inní augnablikið og fara inní daginn af yfirvegun og ró.
Ég fasta alla dag frá 20:00 til 12:00 næsta dag, æfi á fastandi maga á morgnanna og tek á 3 mánaða fresti 48 tíma föstur sem hjálpa mér að endurræsa allt kerfið mitt líkamlega og andlega.
Ég skipulegg mig fyrir hvern einasta dag kvöldið áður og geri markmið fyrir vikuna,mánuðinn og langtíma markmið.
Ég borða eins hreinan mat og mögulega hægt er og drekk örsjaldan gosdrykki, ég drekk ekki áfengi því það gefur mér ekki vellíðan og er ekki í samræmi við minn tilgang.
Ég fjárfesti í menntun og lærdóm eins og námskeiðum, bókum, ráðgjöf osfrv til þess að læra meira og auka skilning minn og þekkingu á ýmsum sviðum og þannig staðna ég aldrei.
Helstu breytingarnar sem ég upplifði með því að fara á þessa vegferð og breyta venjum mínum.
Ég var alltaf veikur allaveganna einu sinni í mánuði á tímabili,
í dag hef ég orðið veikur einu sinni á einu ári og er fljótari að jafna mig.
Ég var með alltof háan hvíldarpúls og blóðþrýstingurinn minn var alltof hár, og ég svitnaði gríðarlega mikið og var alltaf heitt og með hjartsláttartruflanir,
Í dag er blóðþrýstingurinn minn alltaf í jafnvægi, ég er með eðlilegan hvíldarpúls, svitna eðlilega við áreynslu og engar hjartsláttartruflanir.
Ég fékk reglulega mígrenisköst og hausverk þar sem ég endaði einu sinni uppá spítala og fór í skanna til að athuga með heilaæxli sem betur fer var ekki til staðar, ég var með hausverk nánast uppá dag í lok hvers dags.
í dag fæ ég ekki hausverk og ef ég fæ hausverk þá er hann farinn innan klukkustundar.
Ég léttist um 30kg á 6.mánuðum en hélt svipuðum styrk samt sem áður, og hef haldið mér í góðu formi enn í dag og er mikilvægur partur af mér að vera í formi og hreyfa mig mikið, það er mín hugar-líkamsrækt.
Ég var gríðarlega mikill kvíðabolti og óöruggur með sjálfan mig.
í dag hef ég stjórn á streitu og hegðunninni minni með því að nota verkfæri eins og hugleiðslu,öndun,lesa bækur,hreyfa mig og minnka koffín og ruslfæði.
Þetta er bara partur af því sem ég hef fengið útúr því að taka ákvörðun um það að breyta lífstílnum mínum og venjum í daglegu lífi og er enn á þeirri vegferð að læra á sjálfan mig og vera besta útgáfan af sjálfum mér á hverjum degi með skýrum tilgang að vera fordæmi fyrir börnin mín og aðra. og geta verið til staðar fyrir börnin mín eins lengi og ég get með því að fara vel með mig andlega og líkamlega.
Fyrsta skrefið sem ég tók og skrefin sem ég tel mikilvæg:
Að taka ákvörðun og ábyrgð.
Agi og vilji.
Skýr tilgangur og sýn, spyrja sig hvers vegna er ég að þessu?
Leita mér aðstoðar og skrifa niður árangurinn.
Fagna og verðlauna mig reglulega.
Ég hafði aðeins tvo valkosti fyrir 2 árum eftir að hafa upplifað margt í gegnum ævina mína frá blautu barnsbeini og þangað til núna.
Læra af því og taka við þeirri lífsgjöf sem mér hefur verið gefin í vöggugjöf sem er lífsreynsla sem ég mun nota til að vera sterkari og hjálpa öðrum með sterkum skilaboðum og vera fordæmi. Vera ekki fórnarlamb og taka ábyrgð og fyrirgefa
Vera staðnaður í því að kenna öllu og öllum öðrum um það sem lífið hefur boðið mér uppá og verið fórnarlamb það sem eftir er og halda áfram að líða illa og þannig vera fórnarlamb lífs míns það sem eftir er
Ég valdi það að taka ábyrgð á mínu eigin lífi og gera eitthvað í mínum málum og byrja á því að fyrirgefa sjálfum mér og hætta að vorkenna mér og vera fórnarlamb.
Það byrjaði með því að vera heiðarlegur við sjálfan mig og aðra í kringum mig og setja allt uppá borðið og eiga enginn leyndarmál og það var fyrsta skrefið í að vera frjáls, hætta að vera meðvirkur, sleppa tökunum á lífinu og því sem ég hef ekki stjórn á og þannig einbeita mér af því sem ég hef stjórn á í lífinu.
-Snæbjörn Þorgeirsson



Comments