top of page

Sá sem á allt og veit allt.

Sá sem veit allt og og á allt eða vil eignast allt er sá sem mun upplifa minnst í sinni eigin tilvist og þar af leiðandi vera týndur í sínum eigin huga og í verðmætum áþreifanleikans.


Hjartað okkar allra slær og það slær til þess að vera leiðandi í lífi okkar og annarra, þegar við hættum að hlusta á og taka eftir umhverfi okkar og líkamanum okkar þá erum við farinn að ganga um án hjartsláttar og leyfum hugsunum og ytri óraunveruleika stjórna okkur sem er fyrsti dagurinn í að vera lifandi dauður, í okkar eigin lífi og annarra.


Árangur?


Ég hef alla mína tíð skilgreint árangur útfrá því sem ég sé, eins og þegar ég sé einhvern keyra um á flottum glænýjum bíl, vera í háttsettu starfi í stóru fyrirtæki, eða frumkvöðull sem uppgvötar einhverja magnaða vöru sem gefur af sér gríðarlegar tekjur og þeir sem búa í stórum húsum og virðast eiga allt sem lífið hefur uppá að bjóða.


Árangur í íþróttum, starfi, persónulegu lífi byrjar sem markmið og sýn á eitthvað sem við viljum ná í og oft kemur það útfrá ótta og skorti, á því sem við eigum ekki og langar í.

Við reynum að ná einhverju sem fyllir uppí tómarúmið sem við erum að upplifa og búum okkur til væntingar að þegar við ná tilsettu markmiði þá mun allt vera dans á rósum eftir að við höfum unnið á stórmóti, eignast draumahúsið, draumabílinn osfrv.

Þegar það kemur útfrá tilgangi, þakklæti, örlæti og ástríðu fyrir því að ná árangri og lifa vegferðina á hverjum degi af því við elskum að vera og gera það sem við erum og gerum þá erum við að uppfylla það sem við viljum uppfylla og það mun alltaf skila meiri árangri heldur en sá árangur sem kemur frá skorti og ótta.



Ef við viljum eittthvað í lífinu eða ná ákveðnum árangri, þá er styðsta leiðin þangað að gera það með því að breyta viðhorfunum og gera það í þakklæti fyrir okkur og allt í okkar lífi okkar og örlæti, og temja okkur nýja vana sem þjóna tilgangi okkar og henda út vönum sem koma frá skorthugsunum, öfund, reiði, hatri, og neikvæðum tilfinningum í garð annarra og okkar.

Síðan hætta að metast og miða okkur við aðra sem er uppskrift að vansæld, í staðinn getum við lært af öðrum sem við lítum upp til.


Við getum horft á einhvern og sagt ´´ vá þessi hefur náð miklum árangri í lífinu,, og hugsað með okkur ´´ég vildi að ég gæti verið eins og þessi manneskja,,


þá erum við að miða okkur við einstakling sem er með annan bakgrunn, allt önnur gildi en við og tilgang og mögulega hefur sá aðili gert það sem við erum að byrja á 1000x áður og þurft að mæta fullt af hindrunum áður en þessi einstaklingur hefur náð þessum ákveðna árangri sem við sjáum utan frá en við sjáum ekki vegferðina hans/hennar þangað.


Markmiðið er aðeins partur af ferlinu og markmið án tilgangs er tilgangslaust, njótum vegferðarinnar svo við getum náð árangrinum sem liggur í öllu ferðalaginu hvort sem við náum settu markmiði eða ekki og mögulega breytast markmiðin og gildin okkar á leiðinni, sem er allt í lagi, og gerir ferðalagið meira spennandi og fullt af ævintýrum.




Vegferðin og tilgangurinn?


Vegferðin okkar og að gera okkar besta í dag án þess að reyna að vera eitthvað sem aðrir vilja að við séum og að við fylgjum okkar eigin hjarta með því að kynnast okkur sjálfum og læra að vera til staðar fyrir okkur sjálf og elska okkur nákvæmlega núna opnar allskonar dyr í lífi okkar sem við getum valið að ganga inn og læra og upplifa.


Við gerum allskonar svokölluð mistök sem eru ekki mistök heldur það besta sem við gátum gert á þeim tíma sem við gerðum það.


Hver er tilgangurinn?


Fyrir hvað stend ég? og hver eru gildi mín?


Ég hef spurt mig af þessu mjög oft og hef farið af stað í að elta drauma sem þjóna ekki mínum gildum né mínum tilgang heldur einhverju sem ég áttaði mig á því að væri utanaðkomandi áhrif sem ég hélt að ég þyrfti að gera svo ég myndi ná árangri og vera vel metinn í samfélaginu.


Tilgangurinn minn er vegferðin mín þangað sem ég vil verða og er núna, sem er að vera pabbi barnanna minna og gera mitt besta, vinur vina minna osfrv...

síðan hef ég það markmið og sýn að vera leiðandi og hafa áhrif á sem flesta að vakna og blómstra í sínu eigin lífi.

Ég þekki sjálfan mig og fyrir hvað ég stend í lífinu og það er nóg því ég og þú erum nóg eins og við erum í dag til að koma og fara þangað sem við viljum í lífinu.


Ég var með þann tilgang sem ég fékk lánaðan annarsstaðar frá að verða ríkur frumkvöðull sem væri alltaf að harka og allir myndu líta á sem gríðarlega duglegan einstakling og vera sá sem mun vekja athygli í gegnum það að skapa eitthvað sem myndi seljast og vaxa endalaust.....Þessi tilgangur var mjög aðlagandi en hann var aðeins sýndarmennska og þörf mín fyrir að vera mikilvægur í augum annarra....ég fór eftir einhverju sem mér fannst líta vel út en ekki eitthvað sem ég elskaði.


Við höfum öll áhrif á hvort annað á hverjum degi svo við erum öll leiðandi hvort sem við erum meðvituð um það eða ekki.

Þegar við ákveðum að hafa það sem okkar tilgang að vera sá sem gerir það að tilgangi sínu að veita innblástur og vera leiðandi í lífi annarra er meðvitaður um það og hefur þar af leiðandi meiri áhrif í þeim kafla í sínu lífi og annarra.

Sá sem tekur þessa ákvörðun gæti ekki gert það nema með hjálp frá þeim sem sá einstaklingur umgengst frá degi til dags og rekst á, og vera alltaf opinn fyrir því að læra eitthvað á hverjum degi sama hvaðan sá lærdómur kemur, vegna þess að sá sem hættir að læra og vera opinn fyrir því að setja sig í spor annarra er sá sem hættir að geta kennt eða vaxið í sínum tilgang og verður fastur í tilgangsleysi sjálfhverfunnar í sínum eigin hugarheim.


Hvernig við lifum dag eftir dag akúrat núna er okkar eigin ákvörðun, og viðhorf okkar mótar upplifun okkar.

markmiðin okkar eru skotmark á eitt eða fleirri skotmörk í okkar vegferð.


Ef við erum aðeins með markmið en engan tilgang þá upplifum við aðeins tómleika og það er í raun og veru enginn tilgangur með markmiðinu sem gerir markmiðið tómlegt og einmannalegt þegar við náum því.

Þetta er eins og að búast alltaf við því að hitt og þetta muni láta okkur líða betur eða gera okkur hamingjusöm þegar við náum því, og loksins þegar við náum því þá er það aldrei nóg og við leitum alltaf lengra og lengra eftir einhverju sem er beint fyrir framan okkur akkurat núna sem er þakklætið fyrir það sem við erum í dag og að við getum aðeins gert okkar besta í dag, og koma hingað til þess að fara af stað þangað sem við viljum fara í okkar eigið ferðalag, með tilgangi okkar í farteskinu án allra væntinga að hitt og þetta geri okkur hamingjusöm heldur er vegferðin okkar hamingjan sem við búum til með því að breyta viðhorfum okkar gagnvart lífinu.


Hvað skilgreiniru sem ótta?


Óttinn nærist á skorti og vanmátt, óttinn hverfur ekki en óttinn fer inní skelina sína og í fýlu, þegar við ákveðum að hlusta ekki á hann og leyfa honum að vera bara og missa mátt sinn smátt og smátt.



Þegar ég átti mikla peninga, þá átti ég þá í stutta stund og þegar ég átti litla peninga þá lifði ég í ótta og skort að eiga litla peninga.

Þarna festist ég í holu sem ég lét óttann við það að eiga ekki peninga drífa mig áfram í að eignast peninga og þegar ég eignaðist peninga þá óttaðist ég að missa þá og ég missti þá, svo koll af kolli.


Peningar eru svo gott dæmi þar sem við tengjumst flest tilfinningalegum böndum við peninga eins og þegar við sjáum góðverk eins og að einhver ókunnugur gefur öðrum ókunnugum pening sem á lítið þá fyllumst við að góðum tilfinningum, þegar við fáum sjálf óvænta peninga þá hellist yfir okkur stundar gleði og virkjar miklar tilfinningar innra með okkur.


Tilfinningar okkar og hugsanir hafa áhrif á það hvernig við hegðum okkur og við getum haft stjórn á því hvernig við hegðum okkur með því að skoða hugsanir, viðhorf, tilfinningar, söguna okkar og hegðanir hverju sinni, og breyta því sem við viljum breyta í okkar fari til þess að laða að okkur það sem við viljum.


Það sem hjálpaði mér var að byrja á því að breyta viðhorfum mínum gagnvart lífinu og horfa á tækifæri í öllu sem ég leit á sem erfitt eða hörmung í mínu lífi.


Eins og ef ég tek peninga aftur sem dæmi, þá einn mánuðinn stend ég fyrir framan þá staðreynd að vera blankur en ekki fátækur og þarna er tækifæri að læra að sjá hvaða vana ég get breytt í fjármálum og æft mig þennan mánuðinn að læra að láta það sem ég á í dag vera nóg og vera þakklátur fyrir það tækifæri að eiga það sem ég á í dag til þess að auka þekkingu mína á fjármálum og koma í veg fyrir að lenda í því að verða blankur aftur.



En það eru afleiðingar af einhverju sem ég hef gert sem gerði og ég get annaðhvort barið mig niður fyrir afleiðingarnar og verið fórnarlamb eða tekið ábyrgð á afleiðingunum og hjálpað mér upp og breytt viðhorfum mínum og talið upp allt sem ég get verið þakklátur fyrir á hverjum degi í lok dags og lært af afleiðingunum.


Það er ekkert rétt og ekkert rangt það er allt nákvæmlega eins og það á að vera í dag.
Við verðum að læra að elska það hver við erum svo við getum elskað það hver við verðum seinna.

Þessi pistill eru mínar hugleiðingar sem mig langaði að gera af pistli og deila áfram frekar en að skrifa hann í dagbókina mína og halda útaf fyrir mig sem ég ætlaði að gera en fannst þetta vera eitthvað sem ég þarf oft að minna mig á og vonandi mun þessi pistill veita einhverjum smá innblástur inní daginn og þá er markmiði mínu fullnægt:)


Takk fyrir að lesa þennan pistil og eigið magnaðan dag í dag.



Snæbjörn Þorgeirsson



 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page