Ég vildi verða fíkill
- Snæbjörn Þorgeirsson
- Mar 24, 2021
- 7 min read
Updated: Mar 25, 2021
Það var tímapunktur þegar ég var lítill strákur að ég sagði við sjálfan mig að ég ætlaði aldrei að reykja og drekka.
Síðan tók raunveruleikinn við á unglingsárunum og ég hafði gleymt þessu loforði og fór að djamma, drekka og reykja eins og svo margir unglingar á unglingsárunum.
Innst inni vissi ég að ég væri að gera eitthvað rangt með því að drekka áfengi og reykja, en ég hlustaði ekki og hélt áfram þar til allt fór algjörlega úr böndunum og ég þurfti að klessa á fullt af veggjum áður en ég vaknaði og áttaði mig á því að ég hafði fengið óskina mína uppfyllta sem var að verða fíkill.
Fíkillinn
Ég átti mér fyrirmyndir úr bíómyndum og frá frægu fólki þegar ég var ungur. Þessir aðilar voru allir drykkjumenn, ofbeldishneigðir,brotnir,farsælir en samt sem áður með gull af hjarta en með þoku í kringum hjartað vegna sársauka fortíðarinnar sem gerði þá grjótharða action man hetjur í mínum augum á ungra aldri.
Þetta voru menn eins og Silvester stallon, mickey rourke, Al pacino(scarface), robert de niro, clint eastwood, arnold schwarzenegger, keanu reeves, 50 cent og eminem osfrv....Ef það er horft á grunninn sem þessir aðilar bera þá sést þessi elítu karlmennska sem var eitruð fyrir mig sem ungur drengur og ég drakk þessa aðila í undirmeðvitundina mína án þess að átta mig á því þá vildi ég vera eins og þeir í allskonar formum, en ég hugsaði ekki um það þannig að ég hafi reynt að verða eins og þessar persónur en á endanum þá var ég orðinn hættulega nálægt því að verða eins og þeir því innst inni vildi ég það og óskaði mér það ómeðvitað, og ég var orðinn:
Reiður einstaklingur, óheiðarlegur, ofbeldi var mitt vopn sem ég hafði sem betur fer aldrei notað, en var oft nálægt því, ég hleypti engum of nálægt mér, setti upp grímu til þess að allir aðrir myndu ekki sjá mig heldur vegginn sem var búinn að myndast utan um þennan einstakling sem ég var orðinn.
Hjartað mitt hefur alltaf verið stórt og ríkt, en ég var búinn að mynda sterkan múr yfir það og það var þakið í myrkri og þoku sem ég gat ekki leitað í sjálfur til að finna sjálfan mig sem bjó í hjartanu þar sem kærleikurinn, ástin og innsæið mitt eða andinn minn býr.
Fíkninn mín hafði öll völd á mér í nánast 7.ár frá 15.ára aldri og það byrjaði með því að ég fór að lyfta lóðum og byggja upp vöðvamassa, útfrá því fór ég að reykja og drekka, síðan fór ég útí steranotkun og í lokin var ég kominn í kannabis og síðan alveg í endalokunum á fíkninni þá var ég farinn útí lyfseðilsskyld lyf og kókaín.
Ég faldi þetta vegna skömm sem ég bar með mér alla daga fyrir að vera sá fíkill sem ég var orðinn, og vildi ekki sýna neinum eða fá neina einustu aðstoð.
Mögulega verða sumir hissa sem lesa þetta og það er einmitt tilgangurinn með þessum pistli að sýna það að hver sem er gæti verið á dimmum stað en okkur grunar ekkert og það er enginn sem fer í gegnum lífið áfallalaust en við getum farið í gegnum lífið án hjartsláttar eða með hjartslátt í takt við alheiminn og slegið í takt við lífið sem okkur var gefið og þannig sjáum við heiminn úr linsu sem fær okkur til að sýna kærleik,ást og samkennd með öðrum án þess að dæma og vera til staðar fyrir okkur og aðra í okkar lífi.
Það var ekkert sérstakt í raun sem fékk mig til að snúa við blaðinu, það var í raun sannleikurinn.
Sem var sá að ég var orðinn og er tveggja barna faðir og ég snéri við blaðinu á einu augnabliki því ég áttaði mig á því að ef ég myndi halda áfram þá væri ég að fara að gefa börnunum mínum það líf sem ég vildi ekki þegar ég var barn.
Og vildi gefa börnunum mínum lífið sem ég þráði sem barn og útfrá því varð til tilgangur sem er að skapa nýja arfleið fyrir börnin mín og í leiðinnni að hjálpa eins mörgum og ég get í leiðinni í mínu starfi og á minni vegferð að finna tilganginn sinn og innri ofurkraft til að blómstra.

Tilgangurinn er lífsorkan mín.
Þegar ég fór að lifa lífinu mínu með tilgangi sterkari en fíknin og þegar sá tilgangurinn var orðinn miklu stærri en ég sjálfur og allt sem er veraldlegt þá fór lífið að gerast og það var eins og það hafi verið kveikt á risastórri ljósaperu sem lýsti upp alla mína tilveru og allt umhverfið mitt, bæði innra og ytra umhverfið mitt og innra.
Ég sá loksins skýrt hvað leiddi mig hingað, hvar ég væri og hvert ég vildi fara.
Svo ef þú sem ert að lesa þetta og ert að díla við eitthvað sem þér finnst óyfirstíganlegt þá vil ég gefa þér loforð.
Ef þú ert tilbúinn að taka ábyrgð, fyrirgefa þér og gefa upp egóið og biðja um aðstoð þá muntu sjá til sólar og þegar þú ferð að sjá til sólar þá muntu sjá svo marga möguleika, til að viðhalda jafnvæginu á milli myrkru tímanna og sólartímanna á nýju beinu brautinni þá er lykilinn að þekkja gildin sín og vera með tilgang sem er stærri en við sjálf og það er eins gott að tilgangurinn verði okkar innri vekjaraklukka á erfiðu tímunum okkar og síðan túrbínan á góðu dögunum, því tilgangurinn er vegferðin okkar í okkar tilveru og markmiðin eru ósigranir og sigranir sem verða af reynslu, Gildin okkar er okkar innri bæklingur til að leita í og fara yfir ef við förum aðeins útaf brautinni.

Trúðu, treystu og slepptu síðan tökunum.
Við erum alltaf að reyna að hafa stjórn á öllu okkar umhverfi bæði innra og ytra umhverfi.
Það er sérstaklega áberandi á tímum sem við lifum í núna, þar sem við erum að reyna að hafa áhrif á, og koma í veg fyrir allskonar hluti sem eru miklu stærri en við sjálf og við teljum okkur trú um að við getum náð tökum á.
Útfrá þessu stjórnleysi verður ótti sem smitast útí heilu samfélögin og skapar glundroða og ringulreið hjá fólki.
Eina sem við getum í raun gert er að gera okkar besta og stjórna okkar innra umhverfi sem eru hugsanir okkar, hegðanir og hvernig við lifum lífinu okkar einn dag í einu með því að byrja á að vinna í okkur sjálfum sem mun skila sér áfram til samfélagsins og allra sem við umgöngust.
Þegar við förum að sjá heiminn með öðrum augum en áður hvort sem það er neikvætt eða jákvætt þá er það vegna þess að við höfum breytt viðhorfum okkar, hugsunum og hegðun gagnvart heiminum og þá förum við að sjá breytingar allt í kringum okkur án þess að reyna að breyta einhverju nema aðeins hugarfari okkar, viðhorfum sem myndar nýtt hegðunarmynstur og nýja sögu og kaflaskipti í okkar lífi og heiminum sem speglast í augunum okkar og annarra.
Hverju trúiru um sjálfan þig?
Treystiru sjálfum þér?
Hvað er það sem þú hefur ekki stjórn á í þínu lífi?
Ertu tilbúinn að sleppa tökunum á öllu sem þú hefur ekki stjórn á í þínu lífi?
Fíkilinn kíkir í heimsókn.
Það er hlægilegt að hugsa til þess í dag að ég var fullur af fordómum gagnvart fíklum allan tímann með ég var sjálfur að díla við fíkn, og ég taldi mér trú um að ég hefði fulla stjórn á allri minni hegðun gagnvart áfengi og eiturlyfjum og ég væri alls ekki fíkill þrátt fyrir að það sé ríkjandi alkhólismi hjá báðum foreldrum mínum og fjölskyldu.
Þetta er risa dæmi um einstakling sem ég var í bullandi afneitun og fullur af hroka og egó sem leiddi til óheiðarleika og skömm sem er af mínu mati hræðileg byrði að bera með sér út lífið.
Það kemur fyrir að ég tek eitthvað verkefni að mér eða fæ eitthvað á heilann eins og sem dæmi:
Ég keypti mér piparmöndlur og ég fékk áráttu fyrir piparmöndlum og keypti mér piparmöndlur uppá dag í nokkrar vikur þar til ég áttaði mig á því að fíkilinn hafði kíkt í heimsókn og í staðinn fyrir að taka eftir því og leyfa honum og koma og fara. Eins og lest sem stoppar á stoppistöð og fer síðan aftur, þá þaggaði ég niður í fíklinum með piparmöndlum, þegar ég er að skrifa um það núna sé ég hversu galin þessi hegðun er og skemmtilega klikkuð líka.
Þegar ég var farinn að taka eftir þessu mynstri þá hef ég fundið mína leið til að díla við fíkilinn þegar hann kemur í heimsókn og það er með því að setjast niður og hugleiða og skoða hugsanir mínar, tilfinningar og líkamlegt ástand mitt að inna og utan og síðan leyfi ég honum að gufa upp.
Útrásin mín og önnur áhrifrík leið til að díla við fíkilinn þegar hann kíkir í heimsókn og til að halda mér í jafnvægi er að stunda lyftingar og hreyfingu.
Samt er stærsta ástæðan fyrir því að ég er á þeim stað sem ég er í dag og vissan sem ég finn sterkt fyrir og veit að verður alltaf til staðar.
Sem er að ég muni aldrei detta útaf sporinu.
Er að vera með tilgang sem er svo miklu stærri en ég sjálfur, þekkja gildin mín og vera samkvæmur mínum gildum í lífinu sama hvað.
Þetta er stærsta ástæðan fyrir því að ég er laus undan hlekkjum fíkninnar og vil hjálpa öðrum að lifa innihaldsríku lífi sem er með tilgang og hjálpa eins mörgum og ég get uppúr myrkrinu og inní ljósið og leiða aðra framhjá myrkrinu með því að veita ljós inní líf sem flestra á minni vegferð.
Lokaorð
Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir að lesa þennan pistil og vona innilega af öllu mínu hjarta að þessi lestur hafi gefið þér eitthvað.
Ég er alltaf tilbúinn til að svara öllum sem vilja spyrja mig útí eitthvað tengt pistlunum eða hvað sem er.
Og ef þig vantar aðstoð með eitthvað, þá er ég að veita fría markþjálfun og þjálfun/aðstoð, til að þú getir fundið þinn innri styrk til að láta þín markmið og drauma verða að veruleika og ég set mig allan í að gera mitt besta og vera 100% til staðar fyrir þig í því ferli og veita stuðning alla leið.

Lífsorkan
Snæbjörn Þorgeirsson
-Ráðgjöf, NLP therapía, markþjálfun



Comments