Berskjöldun.
- Snæbjörn Þorgeirsson
- Nov 20, 2020
- 4 min read
Ég hef lengi lifað í blekkingu og óheiðarleika gagnvart sjálfum mér og öðrum með því að setja upp filter á hverjum degi til að þóknast öllum í kringum mig yfir daginn og enda svo tómur í lok dags og á endanum vera sá eini sem veit hver ég er í raun og veru.
Á endanum þekkti ég mig ekki sjálfur og enginn í mínu lífi þekkti mig ekki heldur.
Það var ekki fyrr en ég berskjaldaði mig og horðist í augu við sannleikann og tók fulla ábyrgð á eigin lífi og lærði að elska allt sem á undan er gengið og hver ég er í dag, sem ég fór að kynnast mér á ný og það var fyrir c.a 3.árum og ég er enn á þeirri vegferð að kynnast mér betur og læra sem er partur af okkar lífsvegferð og gerir okkur kleift að vaxa og þroskast sem einstaklingar í stað þess að staðna í lífskapphlaupinu og hlaupa framhjá okkur og týna sjáfinu okkar.
Sem er oft sársaukafullt að finna og verður erfiðara því lengur sem við höfum hlaupið frá okkur sjálfum í brjálæðislega hröðu lífskapphlaupinu.
Ég var og gríp mig enn í þeirri stöðu að standa einhversstaðar fyrir framan fólk í allskonar aðstæðum hvort sem ég er að tala eða verið sé að tala við mig að finna fyrir óöryggi og fara pæla í því hvort manneskjan sjái það sem ég er að ræða við eða fólkið í kring og set hendurnar í vasann og líð strax betur, en þá fer ég að pæla í því hvort ég eigi að horfa stanslaust í augun á manneskjunni eða líta undan öðru hverju, eða hvort það sé eitthvað í skegginum mínu osfrv...
Hvað gerist ef ég sleppi því að setja hendurnar í vasann og afhverju gerum við þetta eða höllum okkur upp að einhverju osfrv?
Við finnum fyrir einhversskonar öryggi myndi ég halda og erum ekki eins berskjölduð ef við erum með krosslagðar hendur, hendur í vösum osfrv.
Við erum myndi ég halda flest hrædd við að berskjalda okkur og ég skil það mjög vel, samt sem áður hefur verið mikil vitundarvakning hjá okkur mannfólkinu seinustu ár og við erum orðinn meira tengd okkar karleðli og sömuleiðis kveneðli og búinn að finna jafnvægi sem bæði kvenfólk og karlkyns, í að leyfa okkur að nýta bæði karlorkuna okkar og kvenorkuna okkar meira.

Berskjöldun mín sem karlmaður.
Ég hef verið þessi staðlaða mynd karlmanns og verið inní harkinu sem fylgir því að brjóta alla veggi atvinnulífsins og mennta mig í því sem talið er vera karlmannlegt og skila tekjum sem eru háar og eiga samkvæmt stöðluðum samning karlmannsins að geta séð fyrir öllu heimilinu, náð árangri, skilið eftir mig arf sem sér fyrir næstu kynslóð sem tekur við samning karlmannsins.
Ég er karlmaður sem þekkir bæði mína kvenlegu hlið og mína karlmannlegu hlið og nýti þær báðar til þess að byggja upp grunninn að innihaldsríku lífi fyrir mig og fjölskylduna mína.
Ég er karlmaður sem talar um tilfinningar og hlustar á aðra tjá sínar tilfinningar af einlægum áhuga og án fordóma.
Ég er karlmaður sem er með jafn há laun og stundum lægri og konan mín á mánuði og sé um heimilið með konunni minni.
Ég er karlmaður sem leyfi mér að vera reiður en hef stjórn á hegðunni minni og leyfi mér líka að gráta en hef stjórn á hegðun minni sömuleiðis.
Ég er karlmaður sem talar um fallegt sem eðlilegasta hlut í heimi og nota það orð opinskátt því einfaldlega mér finnst það fallegt orð.
Ég er karlmaður sem þykist ekki kunna eitthvað sem er ekki minn styrkleiki og ekki minn áhugi en redda mér ef ég þarf þess.
Ég er karlmaður sem hefur lent í kynferðislegri misnotkun.
Ég er karlmaður sem hlustar á justin bieber, Ellen krauss, justin timberlake, hip hop og christina aquilera.
Ég er karlmaður sem drekk te, 100% kakó og elska að dýfa mig ofaní andleg málefni og tengt öllu sem er miðlun, tarrot, heilun osfrv.
Ég er karlmaður sem er stoltur af því að vera nútímakarlmaður í nútímasamfélagi.
Það eru flestir karlmenn svona í dag eða allaveganna upplifi ég það og finnst það vera frábær þróun, samt sem áður eru karlmenn alltaf strákar og það verður aldrei dregið úr okkar DNA og við eigum líka að leyfa okkur að vera strákar.
En þessi gamla mynd af alvöru karlmanni er úrelt og hefur aldrei verið til.
Það er ekki til neitt sem heitir að vera alvöru karlmaður eða alvöru kvenmaður.
Við erum öll einstök og erum öll fullkomin eins og við erum.
Berskjöldun
Mín berskjöldun var og er þegar ég er heiðarlegur við sjálfan mig og aðra og er ekki að reyna að þóknast öðrum og er í takt við mín eigin lífsgildi og leyfi mér að vera ég sjálfur sama hvað og tek ábyrgð á mínu eigin lífi.
Berskjöldun er þegar við horfumst í augu við aðstæður og sjálft okkur eins og við erum og viðurkennum og tökum það í sátt og leyfum okkur að elska okkur eins og við erum núna.
Þetta er æfing eins og allt annað og krefst aga og hugrekkis.
Að lokum
Það er aðeins við sjálf sem sköpum okkar eigin vandamál með því að veita þeim athygli.
Veitum því athygli sem okkur langar til að vaxi og dafni og það mun vaxa og dafna.
Vandamálin eru orðin vandamál þegar við gefum vandamálinu merkingu.
Við erum öll kominn af sömu jörðinni og höfum öll áhrif á hvort annað, svo að lítið bros, hrós sem hittir beint í mark, kurteisi í garð náungans þrátt fyrir ókurteisi náungans, þiggja af þakklæti og gefa af kærleik, allt þetta gerir kraftaverk og getur bjargað deginum okkar og þeirra sem við eigum í nánd við daglega.
Takk kærlega fyrir að lesa, ég kann mikið að meta það.
Snæbjörn Þorgeirsson



Comments