top of page

Erum við að nota tímann okkar eða eyða tímanum okkar?

Tíminn er áhugavert viðfangsefni þar sem við erum öll með 24 klst í sólarhringnum samt grípur maður sig í þeirri afsökun að seigjast ekki hafa tíma til þess að gera eitthvað, samt er alltaf einhver sem virðist hafa allan tímann í heiminum.

Þá hef ég oft spurt mig af því hvers vegna í ósköpunum afkasta sumir með 4 börn og í fullri vinnu meira en aðrir sem eru í sömu stöðu?


Þegar ég fór að pæla í þessu og kynna mér þetta betur tók ég eftir því að þeir sem afkasta meiru en sumir, þrátt fyrir að vera í fullri vinnu og með íþróttalið af börnum er einfaldlega:


Þessir einstaklingar stjórna tímanum sínum og eru vel skipulagðir fyrir hvern einasta dag án nokkurra þráhyggju gagnvart einu né neinu.

Þessir einstaklingar bera virðingu fyrir tímanum sínum og gefa ekki tímann sinn nema þeir eigi til nægan tíma fyrir aðra utan börnin og fjölskyldu, og passa uppá að nota tímann sinn í það sem gefur þeim meira en tekur frá þeim.


Þegar við erum með tímastjórnun og gott skipulag yfir daginn alla daga þá búum við til gæðatíma fyrir okkur og aðra sem verða miklu innihaldsríkari og fallegri stundir sem skapa góðar minningar.


Nýta tímann eða eyða tímanum.


Að nýta tímann er þegar við erum í augnablikinu að njóta þess að gera eitthvað og höfum áhuga á því hvort sem það er að horfa á eitthvað sem okkur finnst áhugavert, stunda útiveru, leika við börnin okkar, fara í ræktina, skapa eitthvað, hitta fólkið okkar osfrv.

Það er mikilvægt að vera meðvituð um það hvort við erum að nýta tímann í eitthvað sem er uppbyggjandi og gefandi vegna þess að ef við pælum í því þá höfum við öll 24klst í sólarhringnum og við sofum í 6-8 klst og erum vakandi í 14-16klst.


Hvað gerum við við þessa 14-16klst sem við erum vakandi?


Það sem hefur virkað fyrir mig er að fara reglulega yfir það í lok dags og búa mér til 20-30 mín í lok dags og fara yfir það hvernig ég nýtti tímann minn:


  • Með fjölskyldu,börnunum mínum og maka?

  • Vinnunni?

  • Morgnanna?

  • Hádeginu?

  • Samskiptum við aðra yfir daginn?

  • samfélagsmiðlum?

  • tölvunni

  • kvöldin

Þarna er ég að skoða það hvernig ég mögulega geti nýtt tímann minn betur og oft er ég að eyða tíma sem ég hefði getað nýtt í mikilvægari hluti eins og viðvera með börnunum mínum, afkasta meiru í vinnunni, hafa meiri orku fyrir að rækta sjálfan mig osfrv.


Það er mjög persónubundið hvernig við viljum nota tímann okkar og þar eru okkar lífsgildi ríkjandi svo það er gott að vita gildin sín til að fá skýrari mynd á sjálfan sig og fyrir hvað maður stendur.






Gildin okkar er leiðarvísir


Það tók mig langan tíma að átta mig á gildunum mínum og þau geta breyst.

Í kjarnanum eru þau alltaf eins þar sem ég legg mestu áherslu á nokkra hluti og útfrá þeim gildum bý ég til ákveðna umgjörð utan um líf mitt dags daglega.


Gildin okkar geta verið góður leiðarvísir í lífinu.


Ég legg áherslu á daglega og eru gildin mín:


  • Svefn

  • næring

  • hreyfing

  • sveigjanleiki

  • heiðarleiki.


Ég legg mikla áherslu að ná góðum svefn sem gefur mér þá orku næsta dag til að nýta tímann minn vel og afkasta meiru.


Síðan næri ég mig með næringu sem gefur mér vellíðan andlega og líkamlega og þá orku svo ég sé í jafnvægi yfir daginn.


Ég byrja alla daga á að hreyfa mig og nýti þannig byrjun dagsins og þann tíma til að tengjast inní daginn fullur af orku og tilbúinn að takast á við daginn í dag.


Er sveigjanlegur sem þýðir fyrir mér að ég er tilbúinn að takast á við óvæntar breytingar með bjartsýni og horfi á bæði jákvæðar og neikvæðar breytingar sem eru óvæntar sem tækifæri.


Er 100% heiðarlegur gagnvart sjálfum mér og öðrum og þannig er tíminn minn vel nýttur alla daga án þess að burðast með óþarfa stress og kvíða vegna óheiðarleika.


Nokkrar spurningar sem við getum spurt okkur tengt tímastjórnun og jafnvægi:


Erum við að eyða tímanum eða erum við að nota tímann okkar?


Eru gildin mín í samræmi við það sem ég trúi eða er það eitthvað sem aðrir vilja að ég trúi?


Hver eru gildin mín?


Hvenær líður mér sem best?


Hvar líður mér best?


Er ég að vinna til þess aðeins að fá útborgað á hverjum mánuði?


Er ég að vinna því ég hef gaman af því og er alltaf að læra og vaxa í vinnunni?


Er ég að nota tímann minn vel með vinum og fjölskyldu?


Er ég að nota tímann minn vel í að rækta mig andlega og líkamlega?


Er ég að nota tímann minn eða eyða mikilvægum tíma í einhverjum aðstæðum dags daglega?


Hvað get ég gert núna til þess að nýta tímann minn betur?


Þegar við vöknum á morgnanna þá erum við ein af þeim sem vöknuðum og getum notið tímans hérna á jörðinni.

Það var hellingur af fólki í heiminum sem vaknaði ekki í morgun og er búið með tímann sinn hérna á jörðinni.

Verum þakklát fyrir tímann okkar á hverjum degi og nýtum hann núna á þessu andartaki því þetta er í raun og veru mikilvægasti tíminn sem við fáum núna ekki á morgunn.


Takk fyrir mig


-Snæbjörn Þorgeirsson




 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page