top of page

Hver er tilgangurinn í næringu og hreyfingu?

Updated: Sep 2, 2020

Það kannast flestir við að fara á æfingu og eftir æfinguna erum við endurnærð og tilbúinn að sigra daginn og byrjum á að fá okkur spínat shake eftir æfinguna eða einhverskonar ofur holla næringu, síðan i hádeginu erum við alls ekki að fara fá okkur sorpfæði heldur röðum við á diskinn af salatbarnum og borðum það af bestu lyst, við skellum í okkur einum kaffi eftir matinn og hugsum með okkur að það er nú allt í góðu af taka þennan eina súkuklaði mola sem er í skál hjá kaffivélinni það drepur engan.


Þarna byrjar allt að fara til fjandans klukkan er orðin 16:00 og vinnudagurinn er að klárast og við skellum okkur í bónus á leiðinni heim og hendum einu snickers í körfuna til að borða í bílnum, komum heim eldum matinn og síðan erum við alveg búinn á því um kvöldið og setjumst fyrir framan sjónvarpið og hendum einni bíomynd á imbakassann og það líður ekki langur tími þar til að okkur fer að hundleiðast í okkar eigin návist og verðum óróleg og horfum inní ískápinn og erum fljót að loka honum því allt þetta grænmeti og hollustufæði kallar ekkert á okkur en við opnum ísskápinn einu sinni enn til þess að athuga hvort það sé ekki alveg örugglega eitthvað búið að bætast við úrvalið innní skápnum og viti menn hvítvínsflaskan verður fyrir valinu og við tökum líka ostanna fínu sem við keyptum fyrir helgina og sultuna auðvita síðan lokum við ísskápnum og sjáum að á borðinu er dökkt súkkulaði og skellum okkur í sófann og hámum þetta í okkur fyrir framan sjónvarpið án þess að pæla eitthvað frekar í því og hugsum með okkur að við eigum þetta nú alveg skilið og ég tek mig bara á á morgun og þá er nýr dagur og þá ætla ég all inn!

Við förum að sofa og vöknum þung í maganum og þreytt eftir gærdaginn og druslum okkur á æfingu og sama sagan endurtekur sig síðan.


Við ættum öll að kannast við einhverja útfærslu af þessu sem ég skrifaði hér fyri ofan, ástæðan fyrir því að ég skrifa þennan pistil er einfaldlega ég lifði þessu mynstri lengi og það endaði með slæmum afleiðingum þar sem ég braut mig sjálfur niður fyrir allt sem ég gerði í sambandi við næringu og hreyfingu eins og ef ég borðaði eitthvað rusl fæði fyrir svefninn þá fannst mér ég vera misheppnaður og nærði mig í því ástandi þar sem ég þoldi mig ekki og fannst ég vera ein stór mistök og gæti ekki gert neitt rétt osfrv, síðan á æfingu þá var alltaf eitthvað við líkamann minn sem ég var óánægður með eins og fæturnir mínir væru ekki nógu vöðvastæltir eða ég væri með ljótan kassa og ég ætlaði heldur betur að refsa mér á æfingu fyrir að hafa borðað svona óhollan mat í gær og ég þyrfti að laga líkamann minn osfrv.


Í dag hef ég engu breytt nema ég sýni mér virðingu og er minn eigin besti vinur sem hjálpa mér í gegnum daginn og hvet mig áfram og sýni líkamanum mínum og mér virðingu og ást sama hvað.

Þegar ég fer á æfingu þá geri ég það vegna þess að mér líður vel á æfingu og eftir æfingu, ef ég er að fara að hlusta á neikvæða gaurinn á öxlinni minni brjóta mig niður þá hlusta ég bara og leyfi honum að klára síðan þakka ég honum fyrir, og vel að hlusta ekki á hann og vel að hlusta á jákvæða gaurinn eða innsæið mitt og hjartað sem er að byggja mig upp, og litli neikvæði gaurinn hættir að nenna að blaðra og fer í fýlu og ég held áfram minni vegferð inní daginn.

Ég vel að næra mig af mat sem lætur mér líða vel og það tók langan tíma að finna það út hvaða matur/næring lætur mér líða vel en í dag veit ég nákvæmlega hvaða næring lætur mig líða vel andlega og líkamlega og ég vel að næra mig í þeim tilgang og gefur mér þá orku sem ég þarf til þess að áorka sem mestu yfir daginn og vera í jafnvægi andlega og líkamlega, þegar ég vel að borða eitthvað sem er ekki ''hollt,, þá geri ég það með gleði og bý til stund fyrir það og nýt þess í botn og held áfram með lífið.


Ég vill meina að næring og hreyfing er hvorki holl né óholl heldur sé það hvernig við hreyfum okkur og nærum okkur og með hvaða tilgang og erum oft alltof hörð við okkur sjálf og alltof dugleg við að brjóta okkur sjálf niður í staðinn fyrir að vera til staðar og spyrja okkur reglulega hvers vegna við gerum það sem við gerum? og hvað við viljum? og byrja á því að taka ábyrgð og fara af stað að æfa okkur í samskiptum við okkur sjálf og tala við okkur eins og við myndum tala við ástvin okkar og elska vegferðina þrátt fyrir svokölluð mistök inná milli og kynnast okkur sjálfum betur á okkar vegferð.


Ef við keyrum alltaf bílinn okkar á fullum snúning og hægjum aldrei á okkur yfir hraðahindranir og gleymum að smyrja bílinn þá endar það með því að bílinn bilar og vélinn brennur úr sér.

En ef við hægjum aðeins á okkur og förum rólega yfir hraðahindranir, förum með bílinn í smurningu á réttum tíma þá dugar bílinn miklu lengur.

Það er nákvæmlega það sama og með okkur mannfólkið við stöldrum aðeins við og sjáum vel um okkur andlega og líkamlega og við áorkum miklu meira yfir ævina og lifum innihaldsríkara lífi með okkur, vinum og fjölskyldu.


-Snæbjörn Þorgeirsson





#heilsa#vellíðan#næring#hreyfing#overalllifeenergy

Recent Posts

See All

Comments


Commenting on this post isn't available anymore. Contact the site owner for more info.
Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page