top of page

Næring

Updated: Sep 2, 2020

Hvenær setjumst við niður og finnum fyrir því og pælum í því hvernig okkur líður líkamlega og andlega eftir daginn og hvort mögulega næringin eða maturinn sem við höfum innbyrt yfir daginn hafi einhver áhrif á það hvernig okkur líður eftir daginn.

Ég vil hvetja okkur til að setjast niður og gefa okkur litla stund og fara yfir það sem við innbyrðum af mat yfir daginn og tengja við líðan overall líkamlega og andlega.


* Hvað við borðuðum yfir daginn og hvenær?

* Hvers vegna borðuðum við það sem við borðuðum?

* Hvernig bregst líkaminn við matnum sem við nærum okkur með?

* Erum við orkumeiri eftir matinn eða þurfum við að fá okkur blund eftir matinn?

* Borðum við hratt eða hægt og tyggjumm við matinn?


Þetta er lítið dæmi sem hægt er að spyrja sig þegar er verið að gera matardagbók fyrstu vikunar, síðan hef ég oft farið útí það að spyrja mig af því hvort ég myndi gefa börnunum mínum þessa næringu sem ég gef sjálfum mér?


Það er gott að byrja á því að ná sér í litla stílabók og halda matardagbók í 6-8 vikur og þannig fá yfirsýn yfir mataræðið og matarvenjur til þess að taka út vana í mataræðinu sem þjóna ekki okkar tilgang.


Við erum öll misjöfn og það virkar ekki einhver ein aðferð á alla en ég trúi því samt að næring er partur í okkar gamla vanamynstri sem hægt er að breyta með aukni meðvitund á næringuna sem við erum að innbyrða og þannig búa til nýja vana tengt næringu.


Ég hef mikinn áhuga á næringunni og áhrif næringu á líkamlega og andlega líðan, það mikinn áhuga að ég gerði sjálfan mig að hálfgerðu tilraunadýri í 7ár þar sem ég hef prófað allskonar tengt næringu en það var ekki fyrr en ég fyrir 2 árum gerði lífstílsbreytingu í sambandi við næringu sem ég sé fyrir mér næringu sem hentar mér út alla ævina án þess að ég sé að fara á hnefanum til að ná einhverjum x árangri.


Það sem ég gerði lengi var að fara eftir allskonar prógrömmum tengt næringu og það var í flestum tilfellum gríðarlega einhæft og krefjandi þar sem ég er ekki afreksíþróttamaður að stefna að stóru markmiði tengt því þá fljótlega gafst ég upp, það var ekki fyrr en ég tók eftir því að ég þarf ekki að borða morgunmat til að fúnkera til hádegis og fór ég þá ósjálfrátt að borða innan ákveðins ramma með sveigjanleika frá 12:00 til 20:00 og það hentaði mér persónulega mjög vel og þá borða ég í flestum tilfellum næringu sem er ekki stútfull af innihaldslýsingum sem ég skil ekkert í, heldur einfaldan og næringaríkan mat.


Ég nýt þess í dag að næra mig á þennan máta og finn gríðarlegan mun andlega og líkamlega, ég er ekki eins sveiflukenndur orkulega séð yfir daginn og á c.a 7 mánuðum missti ég c.a 30 kg og er í dag 75kg og styrkleiki minn er svipaður og þegar ég var 100+kg.


Þetta tók mig langan tíma að kynnast líkamanum mínum og hvað virkar á mig en það byrjaði allt á því að veita því meiri athygli hvað ég borða og hvernig mér leið andlega og líkamlega eftr því hvað og hvenær ég borðaði osfrv.


Lykilinn minn í að ná andlegu og líkamlegu jafnvægi spilaði stór partur í næringunni og fylgjast með líðan minni en ekki tölunni á vigtinni eða speglinum og þá fór boltinn að rúlla í minni vegferð í alhliða jafnvægi líkamlega og andlega og taka ábyrgð á því hver ég var og er og vil vera, og fyrirgefa mér og elska mig eins og ég er núna í dag og alltaf.


- Snæbjörn Þorgeirsson




Comments


Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page