Hreyfing
- Snæbjörn Þorgeirsson
- Aug 28, 2020
- 3 min read
Updated: Sep 2, 2020
Ég persónulega hreyfi mig á hverjum degi eitthvað og æfi síðan á hverjum morgni áður en ég fer inní daginn 4-5x í viku, inní líkamsrækt eða heima og tek þá styrktaræfingar, tilgangurinn minn með því að fara á æfingar á morgnanna er sá að á æfingu næ ég 45 mín til 1klst tíma með sjálfum mér áður en ég fer útí daginn og er þá tilbúinn að takast á við verkefni dagsins, með meiri orku og koma líkamanum mínum og hausnum í ástand þar sem vellíðunarhormónin flæða í gegnum mig í langan tíma eftir æfinguna.
Þegar ég tala um að ég hreyfi mig á hverjum degi þá er ég að meina að ég fer í göngutúr með krökkunum, vel stiganna þegar ég fer í blokkir vegna vinnunar, vel að labba með krakkanna í leikskólann ef veður leyfir osfrv.
Æfingar geta verið allskonar og ættu í raun og veru að hafa í för með sér einhverskonar þjálfun þar sem við njótum þess að æfa og hlökkum til þess, æfingar eru mikilvægar til þess að styrkja okkur líkamlega og andlega og reyna meira á okkur en venjuleg hreyfing.
hvaða æfing sem er hvort sem það er að æfa styrk,þol,nýtt tungumál, nýtt námsefni osfrv krefst aga,vilja, þolinmæði og mikilvægt að minna sig á gamla tuggu sem flestir íslendingar kannast við ''æfingin skapar meistarann,, endurtekin æfing aftur og aftur mun á endanum skila árangri.
Hreyfing er mikilvæg og við hreyfum okkur öll eitthvað á hverjum degi hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað, en ef við erum í andlegu ójafnvægi þá er oft sagt að fá sér léttan göngutúr úti í náttúrunni sé besta meðalið, og ég er alveg sammála því, samt sem áður þar sem ég hef verið á þeim stað að vera í mjög miklu andlegu ójafnvægi þá var ekki það fyrsta sem ég hlustaði á þegar einhver sérfræðingur talaði um að fara hreyfa mig og þá myndi mér líða betur heldur hugsaði ég með mér og vildi seigja sérfræðinginum að hætta þessari þvælu og skrifa uppá töfralyfið sem ég þarf og gefa mér greiningu til þess að ég gæti nú fengið nafn á það hvað væri að mér eins og kvíði,þunglyndi,depurð,ADHD osfrv.
Það er svo miklu auðveldara að taka eina pillu í smátíma og líða loksins aðeins betur en það kemur að því að það er ekki nóg og þá byrjar vítahringurinn.
Að leita sér séfræðiaðstoðar og taka lyf og vera í meðferð undir leiðsögn sérfræðinga er mjög gott start en engin lausn og ég tala aðeins útfrá reynslu og þekkingu og þetta er engin alhæfing, en það sem ég vil meina er að töflur við geðvandamálum og undir læknisaðstoð er góð byrjun og þá er tækifærið þegar manni er farið að líða betur að fara reglulega að hreyfa sig og stunda hreyfingu og æfingar þar sem áhugi manns liggur í, og njóta þess og á endanum verður það að nýjum vana og útfrá minni reynslu þá er möguleiki að hætta á allskonar lyfjum við andlegum veikindum og meðalið sem er talið besta meðalið við andlegu ójafnvægi sem mér fannst þvæla í byrjun en í dag eftir að hafa farið þangað þá er hreyfing og næringinn sem fylgir á eftir, besta meðalið við bæði andlegum og líkamlegum kvillum.
Fyrsta skrefið er að viðurkenna og taka ábyrgð á sér og sinni líðan og ekki dvelja inní tilfinningunni heldur vera meðvitaður um að þessi tilfinning sé til staðar og ekkert annað síðan leita sér aðstoðar því þá er meður viljugur til þess að vilja líða vel og ná andlegu og líkamlegu jafnvægi og sýnir sjálfum sér gríðarlegt hugrekki að taka þetta fyrsta skref með góðri aðstoð og eftirfylgni.
takk fyrir að gefa ykkur tíma að lesa og vonandi að þessir pistlar tengt hreyfingu og næringu hafi haft einhver áhrif á þig sem lesanda og hlakka til að heyra hvað þið hafið að seigja um þessar greinar bæði gagngrýni og líka einhverjar spurningar.
- Snæbjörn Þorgeirsson

#exercise#mentalhealth#hreyfing



Comments