top of page

Óskin sem varð að veruleika.

Þegar ég var rétt rúmlega 4.ára að verða 5.ára þá kom pabbi og sótti mig þar sem ég dvaldi í smátíma á vistiheimili fyrir börn, og ég fékk að eyða degi með honum, sem er einn af þeim dögum sem standa fast í minningunni minni og kenndi mér helling um kraftinn í að trúa á eitthvað æðra en maður er sjálfur.


Við keyrðum saman á þingvelli og gengum að almannagjá.

Á leiðinni að almannagjá sagði pabbi mér sögur af þingvöllum og svæðinu í kring sem vakti mikinn áhuga hjá mér og minni forvitni.

Þegar við vorum komnir að almannagjá, rétti hann mér pening og sagði mér að henda peningnum í almannagjánna og ég mætti þá óskað mér eina ósk.


Ég gerði það auðvitað því ég óskaði mér ekkert heitara þá en að eignast action man kall og mitt eigið herbergi og kött, og trúði því varla að ég gæti kastað pening í almannagjá og þá myndi ósk mín rætast.


Næstu daga eftir þennan dag með pabba og hafa óskað mér Action man kall, þá vaknaði ég á hverjum morgni á vistheimilinu og leitaði af Action man kallinum sem ég óskaði mér en fann hann hvergi.


Ég gleymdi aldrei óskinni minni og leitaði alla morgna þangað til ég var orðinn 5.ára að verða 6.ára.

Pabbi sótti mig á vistheimilið einn daginn, og í þetta skiptið gat ég farið með pabba heim og hann þurfti ekki að skila mér til baka á vistheimilið þar sem ég var búinn að dvelja í dágóðan tíma ásamt öðrum börnum á vistheimilinu hjá laugarás.


Á leiðinni heim í bílnum þá sagði pabbi mér að við værum að fara búa í fallegu húsi og þar myndi ég eiga mitt eigið herbergi og tvo ketti, ég gat ekki beðið eftir því að koma heim.


Þegar við vorum komnir þá sýndi pabbi mér herbergið og kettina, en það sem greip athyglina mína strax var Action man kallinn sem var inní herberginu sem ég hafði verið búinn að leita af síðan ég óskaði mér hann á Þingvöllum og ég trúði varla mínum eigin augum þar sem ég var kominn með mitt eigið herbergi, ketti og Action man kall, allt sem ég hafði óskað mér á þingvöllum.






Ástæðan fyrir því að ég rifja upp þessa litlu sögu er sú að þetta er fyrsta minningin mín um það hversu mikilvægt það er að hafa draumsýn og trú á að allt sem maður óskar sér muni rætast og biðja alheiminn um aðstoð.


Síðan þá hef ég alltaf haldið dagbók þar sem ég skrifa niður allt sem mig dreymir um og hef þróað það með árunum og bætt inní draumadagbókina mína.


Þakklætisdagbók þar sem ég sest niður á kvöldin og fer yfir daginn og skrifa það niður og þannig hellist yfir mig þakklæti og fer með þá tilfinningu í svefninn.


Hugleiðingar dagsins þar sem ég skrifa niður tilfinningar mínar og hugsanir og fer yfir daginn útfrá upplifun minni osfrv.


Markmiðasetningar set mér markmið og To do lista fyrir næsta dag og næstu vikur.


matardagbók þar sem ég held utan um hvað ég borða og hvernig mér leið eftir á osfrv svo ég geti verið meðvitaðari um hvaða næring hentar mér og fer vel með mig.


Síðan almennt skipulag fyrir hvern dag, viku, mánuðinn osfrv til að afkasta sem mestu og hafa yfirsýn yfir allt sem ég tek mér fyrir hendur og vera í andlegu og líkamlegu jafnvægi.


Þegar ég skrifa niður á blað þá hef ég tekið eftir því að það verður raunverulegra og meiri líkur á því að ég nái settum markmiðum.


Þegar ég lít til baka og fer yfir árið og fletti dagbókunum þá eru 90% af þeim markmiðum og draumum sem ég hef sett mér orðið af veruleika því ég hafði trú og vilja til þess að láta það verða að veruleika.



Það sem við trúum á verður að hugsunum okkar.

Hugsanir okkar verða að orðunum okkar.

Orðin okkar verða að verknaði okkar.

Verknaðurinn okkar verður að vananum okkar.

Vaninn okkar verða gildin okkar.

Gildin okkar verða örlögin okkar.


Takk fyrir lesturinn


- Snæbjörn Þorgeirsson





 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page