top of page

Nokkur góð ráð gegn skammdegisþunglyndi

Skammdegið fer að skella á, og mér fannst það eiga vel við hæfi að fjalla um það í þessum pistli hvernig við getum tekist á við það að láta það hafa sem minnst áhrif á okkur og hvað sé hægt að gera til að draga úr skammdegisþunglyndi sem svo margir íslendingar upplifa á hverju ári.


Fannst þetta síður mikilvægt þar sem við erum að takast á við mikla óvissu tengt Covid-19 ofan á allt saman.


Sama rútína heldur áfram en munurinn er sá að við vöknum og förum í vinnuna eða skólann og það er dimmt þegar við förum af stað og dimmt þegar við förum síðan heim úr vinnuni eða skólanum.


Við fáum þar af leiðandi lítið af dagsbirtu og þá sérstaklega ef við erum inni allan daginn sem hefur áhrif á okkar andlegu og líkamlegu heilsu.


Við þurfum þá að gæta vel að heilsunni okkar og nýta tímann eins vel og við getum á þeim tíma dags þegar dagsbirtan er sem mest með því að fara út þó það sé ekki nema í smástund og það er sniðugt að fara í smá göngutúr ef veður leyfir draga frá gluggum og hleypa birtunni inní rýmið þar sem við erum á þeim tíma dags.








Einkenni Skammdegisþunglyndi ( seasonal affective disorder SAD)


  • Finna fyrir depurð uppá nánast hvern einasta dag.

  • Missa áhuga á því sem veitti þér ánægju og hefur alltaf haft ástríðu fyrir.

  • Síþreyta og orkuleysi

  • Svefnvandamál

  • Missa matarlyst eða finna fyrir aukni matarlyst.

  • Pirringur og tilgangsleysi

  • Einbeitingaskortur

  • Í alvarlegum tilvikum geta sumir fengið sjálfskaðahugsanir.

Allt er þetta svipað eða alveg sömu einkenni Þunglyndis en munurinn er sá að skammdegisþunglyndi varir yfir vetratímann þar sem skammdegið er sem mest og hverfur eða minnkar síðan með hækkandi sól og þegar dagurinn lengist.


Hvað er hægt að gera strax í dag til þess að minnka líkur á skammdegisþunglyndi?


  • Koma rútínu á svefninn með því að:

Sleppa koffíni eftir hádegi.

Fara uppí rúm á sama tíma á hverju kvöldi og vakna á sama tíma á hverjum morgni.

Geyma öll raftæki fyrir utan svefnherbergið,

Sleppa sjónvarpsáhorfi og símanotkun 4 tímum fyrir svefn,(ef það er ómögulegt þá er möguleiki að taka bláu birtuna af símanum og setja símann á night mode og/eða nota gleraugu sem blokka bláa birtu)

Kveikja á kertum eftir kvöldmatinn og búa til rólegt umhverfi.


  • Taka inn D-vítamín á hverjum degi yfir vetratímann.

  • Hreyfa sig eitthvað yfir daginn úti í náttúrnni og nýta þann tíma sem sólarljósið lætur sjá sig.

  • Mikilvægt að huga að þarmaflórunni þar sem hún spilar stórt hlutverk í okkar andlegu líðan.

Ef Þarmaflóran okkar er í ójafnvægi þá hefur það mikil áhrif á okkar andlegu heilsu, það sem hægt er að gera til til að stuðla að heilbrigðari þarmaflóru.


  • Lágmarka eða taka út hvítan sykur, hveiti, gosdrykki, og næringu sem fer illa í okkur og lætur okkur líða illa eftir að hafa innbyrt, sem kemur fram í vindverkjum, magakrampa, illa lyktandi vindgang og hægðum, þreyta eftir máltíðina, hausverk,kvíða og þunglyndi svo eitthvað sé nefnt.

  • Það er mjög sniðugt að taka inn góðgerla og ég persónulega tek inn góðgerla frá NOW sem heitir Probiotic og hef líka verið að nota Bio kult mind og finnst það vera algjört life hack að hafa byrjað á því að huga alkmennilega að þarmaflórunni með hjálp góðgerla og auðvitað aðalatriðinu að innbyrða næringu sem fer vel í mann.

Þetta eru 4 skref sem er ekki yfirþyrmandi og er hægt að gera strax til að minnka líkurnar á skammdegisþunglyndi.


Þetta er brot af því sem hægt er að gera til að byrja með og þetta hefur reynst mér vel og þá sérstaklega á veturna að leggja meiri áherslu á þessi atriði hér fyrir ofan.


Síðan er gríðarlega mikilvægt að stunda einhversskonar andlega rækt sem hentar hverjum og einum hvort sem það er að stunda yoga, fara útí náttúruna, hugleiðsla osfrv.


Vona svo innilega að þessi pistill geti gefið einhver ráð og minnt okkur á sem lesum hann hversu mikilvægt það er að huga að heilsunni okkar og þá sérstaklega á þessum tíma árs.


Fékk heimildir frá:


Takk Fyrir mig


- Snæbjörn Þorgeirsson

 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page