top of page

Næsta kynslóð.

Tímarnir sem við lifum í núna á tímum Covid veirunnar eru áhugaverðir og geta reynst okkur gífurlega ógnvekjandi og krefjandi, í leiðinni hefur þessi tími kennt okkur margt og sýnt okkur enn meira hversu sterk við erum þegar við vinnum saman sem ein heild.


Næsta kynslóð er betur í stakkbúinn að takast á við þessa tíma þar sem tæknikunnátta og sjálfvirknivæðing er meiri eða hefur nánast tekið yfir okkar daglega líf, og hefur gefið mörgum ný tækifæri og tekið frá öðrum líka störf og ýtt þeim til að aðlagast nýjum tímum.


Það sem er jákvætt við alheimsástandið sem við erum að upplifa vegna Covid veirunnar er mjög margt og má þar nefna:


  • Fundir og ráðstefnur osfrv. er nánast allt orðið rafrænt eða í gegnum zoom og fleirri miðla.

  • Flugsamgöngur eru litlar sem engar.

  • Við keyrum minna á milli staða og nýtum okkur rafrænar undirskriftir, verslum á netinu, tökum námskeið á netinu, þeir sem geta vinna meira heima, vegna þessara og fleirri dæma þá notum við einkabílinn miklu minna en áður.

  • Förum meira út í náttúruna og hreyfum okkur meira en venjulega vegn lokanna og samgöngubanns.

  • Erum meðvitaðari um næringuna okkar og hreyfingu þar sem það spilar lykilhlutverk í að verjast veikindum og styrkja ónæmiskerfið.

  • Erum meira með okkar nánusta fólki.

Þetta eru aðeins nokkur dæmi um það jákvæða sem við erum að upplifa á þessum tímum.


Auðvitað er alltaf hægt að finna eitthvað neikvætt líka og það er alls ekki endilega heilbrigðast að loka alveg augunum fyrir því eins og:


  • Mannleg samskipti eru í lágmarki og persónuleg samskipti og snerting sem hefur alltaf spilað stóran part í mannlegum samskiptum eins og knús,handarband,nálægð og fleirra.

  • Heimilisofbeldi þar sem heimilið er orðið griðarstaður fíkilsins og hefur þar af leiðandi skelfilegar afleiðingar í för með sér.

  • Andleg veikindi hafa aukist tengt veirunni.

  • Fjöldi manns hafa misst vinnuna og fyritækja þurft að hætta rekstri.

Þetta eru nokkur dæmi um það sem er raunverulegt og auðvitað er margt fleirra sem er neikvætt sem hefur fylgt þessu ástandi sem við erum að upplifa.


Ef við skoðum hvað er að gerast og förum uppí þyrluna og skoðum þetta með fullri vitund og án þess að vera við dómarasætið og með hamarinn á lofti tilbúinn að dæma allt og alla þá getum við séð það skýrt..


Við höfum farið illa með jörðina.


Við framleiddum og framleiðum enn bíla hvort sem það er bíll sem gengur fyrir olíu eða rafmagni.

Við eyðum heilu skógunum til þess að fá meira pláss fyrir okkur án þess að skoða áhrifin á aðrar lífverur á jörðinni.

Við gleymum okkur í eigin sjálfhverfu að ná árangri og þegar árangri er náð er það ekki nóg við viljum meiri árangur og meiri..

Við framleiðum matvæli sem eru að drepa okkur hægt og rólega og jörðina.

Við teljum okkur trú um að við séum að bjarga jörðinni með því að berjast.

Við framleiðum lyf sem eru að drepa okkur og aðrar lífverur á jörðinni.

Við framleiðum eiturefni,vopn og fleirra sem hafa gereyðilegt stóran part af jarðríkinu.


Og okkur finnst undarlegt að Jörðin eða alheimurinn stoppi okkur af, eftir að hafa reynt það í mörg ár og áratugi, en enginn hlustaði þar á meðal ég.

Það er ekki fyrr en jörðin/alheimurinn skapar ástand sem við getum ekki annað en brugðist við strax.


Það þarf oftast hörku og læti til að fá einhvern sem er alveg vit-laus, og fastur í sínum eigin brjálaða heimi með einbeitinguna fasta inní sinni eigin egó-kúlu, og heyrir aðeins í þeim sem eru inní þessari egó-kúlu, sem og sá er inní henni.


Við höfum lokað á öll skynfæri of lengi gangvart öllu sem í kring um okkur er dags daglega. Þangað til að heimurinn öskrar almennilega til okkar og stoppar okkur af.

Fyrir mörg okkar er of mikið að stoppa allt í einu og opna loksins augun fyrir því sem er raunverulegt og takast á við sjálfið sitt og eigin tilveru og annarra.


Næsta kynslóðin



Næsta kynslóðin eru börnin sem eru að alast upp og þroskast inní umhverfi sem þessu sem við upplifum sem undarlega tíma, og þessir tímar eru undarlegir fyrir okkur sem höfum upplifað önnur tímabil sem hafa verið bjartari og stabílari.


En þessi kynslóð sem ég er að tala um upplifa ekki endilega þessa tíma sem undarlega tíma né breytta tíma þar sem þetta er aðeins partur af þeim tíma sem þau eru að þroskast með.

Og þar af leiðandi aðlagast því betur en fullvaxta einstaklingur.


Svo Það er mikilvægt að við sýnum fordæmi og erum til staðar fyrir börnin.

´´það þarf heilt samfélag til að ala upp eitt barn,,

Það eru einmitt börnin okkar sem munu taka við nýjum tímum skapa nýja tíma þar sem þau munu annaðhvort endurtaka ferlið eins og við gerðum eða gera okkar tilvist hérna á jörðinni í framtíðinni af einhverju sem ég vil kalla.

´´Lífsorkan heil sem ein heild,,

Dóttir mín sem er fjögurra ára og sonur minn sem er tveggja ára, eru næsta kynslóð og öll hin börnin okkar og þau geta kennt okkur meira en okkur grunar.

Þau eru alltaf þau sjálf án allra hlutverka og skilja ekki þegar við erum í okkar hlutverkum sem foreldrar, en þau finna fyrir því þegar við erum nálægt og leggjum niður grímurnar okkar í lok dags og setjumst niður með þeim og erum að lita,púsla,lesa,leika eða hvað sem er þá erum við kominn til þeirra og getum lært svo mikið inní þessum litlu mómentum með börnunum okkar hvort sem við erum foreldrar þeirra, frændi/frænka, amma/afi osfrv.


Takk fyrir að lesa og gleymum ekki því að litlu hlutirnir í lífinu okkar eru verðmætari en við gerum okkur grein fyrir og gleymum okkur ekki í eigin huga því bestu sögurnar koma frá hjartanu en ekki huganum.


Snæbjörn Þorgeirsson


 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page