top of page

Sjálfsvirðing

Sjálfsvirðing gæti hljómað svolítið sjálfhvert en það er í raun eins og orðið ber til kynna að virða sjálfan fyrir sér og bera virðingu fyrir sjálfum sér.


Fyrsta skrefið er að vera meðvitaður.


  • Vera meðvitaður um sínar eigin tilfinningar og hugsanir.

  • Vera tilbúinn að taka ábyrgð á sínu lífi og lekki líta á mistök sem eitthvað neikvætt heldur tækifæri til að vaxa og gera enn betur.

  • ekki loka augunum fyrir neikvæðum tilfinningum heldur nýta sér þær eins og einhversskonar skilaboð til að rækta sjálfan sig og skoða sig enn betur.

  • vera meðvitaður í nánum samskiptum við annað fólk.

  • Þekkja mínar eigin langarnir og vilja sem einstaklingur..

Annað skrefið er að sætta sig við sig eins og maður er í dag:


  • Samþykkja líkamann sinn eins og hann er núna

  • samþykkja myrku hliðina sína og galla

  • Samþykkja allar sínar tilfinningar og hugsanir

  • Vera alveg sáttur í augnablikinu og þakklátur fyrir lífið sitt eins og það er í dag.

Þriðja skrefið er að taka fulla ábyrgð á sínu eigin lífi en ekki bera ábyrgðina á öllu heiminum:


  • Taka ábyrgð á gjörðum sínum og hegðun.

  • Taka ábyrgð á tilfinningum sínum og hugsunum.

  • Taka ábyrgð á samskiptum mínum og hegðun gagnvart öðrum og sjálfum sér.

  • taka ábyrgð á sinni líðan og hamingju hverju sinni og ekki kenna öðrum um það hvernig manni líður.

Fjórða skrefið er að vera sjálfum sér trúr og fylgja sinni eigin sannfæringu:


  • Vera tilbúinn að taka ábyrgð á sinni eigin sannfæringu og viðurkenna það þegar manni verður á og hefur rangt fyrir sér.

  • Lífið sitt hafi mikinn tilgang

  • vera ábyrgur fyrir sínum eigin markmiðum.

  • Að allt í mínu lífi hvort sem það er vinnan, samband mitt við maka, samband mitt við vini hafi mikinn tilgang.

  • Að gera ekki neitt en búast við breytingum sé algjört brjálæði og þannig vita af því að maður þurfi að gera eitthvað til að eitthvað breytist og stíga út fyrir sitt eigið þægindarbox reglulega.

Fimmta skrefið er að vera Heiðarlegur:


  • Vera heiðarlegur í samskiptum við aðra án þess að særa tilfinningar sínar eða tilfinningar annarrra.

  • Standa alltaf við loforð sín þegar maður lofar einhverju eða sleppa því að lofa einhverju.

  • Aldrei vera með hvíta lygar eða seigja eitthvað aðeins til að aðrir mögulega heyri það sem maður heldur að aðriri vilji heyra.

  • Vera heiðarlegur en ekki þæginlegur.

  • Seigja sínar skoðanir.

  • Gera sér ekki upp hlátur til að þóknast öðrum.

  • Þora að seigja beint út það sem liggur manni á hjarta og ekki vera að fegra það eða skreyta það svo að það komi betur út fyrir hinn aðilann.

  • vera trúr maka sínum.

  • Vera heiðarlegur gagnvart öllu í lífinu og sjálfum sér er gríðarlega mikilvægt.

Siðan er mikilvægt að muna:


  • Við erum ekki eign annarra

  • Það sem er erfitt en samt sem áður í takt við tilganginn minn og ástríðu og hefur góð áhrif á mig og aðra í kringum okkur er oft mjög mikilvæg vegferð þótt hún sé erfið í smátíma en uppskeran verður svo miklu sætari.

  • Hafa stjórn á freistingum og fíknihegðun sinni þar sem það bitnar oft á fólkinu í kringum okkur.

  • Hlusta á innsæið sitt og leyfa sér að tengjast því.

  • Við höfum alltaf valið að seigja já og seigja nei við hverju sem er.

  • Finnast sínar þarfir og tilgangur mikilvægur.


Við getum meðvitað æft okkur á hverjum degi að bæta sjálfsvirðinguna okkar með litlum taktföstum skrefum á hverjum degi.



Takk fyrir mig


-Snæbjörn Þorgeirsson

 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page