top of page

Það er allt í lagi að líða allskonar.

Ég hef undafarið verið að upplifa gömlu vanlíðan mína sem ég hélt að ég myndi aldrei upplifa aftur eftir að hafa tekið alla mína heilsu alveg í gegn fyrir c.a 2 árum.


Ég fór að vakna á morgnanna með lítinn sem engan drifkraft og kvíðahugsanir sem ég hef ekki heyrt í lengi.


Ég fór strax í það að berjast á móti þessari líðan af öllum krafti og það gerði bara enn verra og dró mig dýpra ofaní kvíða holuna og depurðina.


Sleppa tökunum


Eftir mikla sveiflukennda líðan dag eftir dag í nokkra daga þá hætti ég að berjast á móti og ákvað að dvelja með mér í þessari líðan og áttaði mig á því að ég var skíthræddur við sjálfan mig á þessum stað að sitja með mér og hugsunum mínum sem einkenndust af sjálfsblekkingum um mig og skömm.

Sem kom fram í ofhugsunum/ofurmeðvitund, í aðstæðum daglegs lífs og ofurmeðvitaður um sjálfan mig á neikvæðan hátt í kringum annað fólk, síðan fór ég að efast um allt sem ég geri og passa mig á því að gera ekki neitt svo ég myndi nú ekki gera mig af fífli osfrv.


Þegar ég sleppti tökunum þá fór ég að sjá allkonar hegðunarmynstur sem ég hafði skapað mér sem var orðið að þráhyggju sem byrjaði sem rútína og partur af minni vegferð í sjálfsvinnu, sjálfskoðun og verða edrú.

sem dæmi þá var það sem ég vildi orðið að einhverju sem ég varð að gera eins og að ég varð að vakna á morgnanna 6:15 og varð að klára æfinguna mína og varð síðan að hugleiða, í stað þess að vilja það.


Það er mikill munur á því að vilja eitthvað eða verða að gera eitthvað.


Það sem við gerðum í gær er búið og gert, og það sem við gerum á morgun er ekki sjálfsagt.

Það sem við gerum í dag er eini tíminn, og eini tíminn þar sem við getum haft áhrif á líf okkar og líf annarra.


Það sem ég hélt að myndi ekki gerast, gerðist.


breytingarnar sem við erum að upplifa öll vegna Covid 19 höfðu svona mikil áhrif á mig andlega, og sem betur fer þá hef ég unnið mikið í sjálfum mér og get í dag lifað með minni líðan og verið sáttur hvort sem ég er í vanlíðan eða vellíðan og liti' á mínar innri tilfinningar og líkamlegar breytingar sem skilaboð um að gera eitthvað eða gera bara alls ekki neitt.


Það eru ekki allir eins og ég og þú og það eru allir misjafnir hvort sem það er Dalai Lama eða bóndinn á næsta bæ, þá eigum við það öll sameiginlegt að vera tilfinningaveruru og við upplifum öll alskonar tilfinningar yfir ævina á allskonar æviskeiðum yfir lífið og að ætla sér að setja sér það markmið að líða alltaf vel er gott og blessað en raunveruleikinn er sá að okkur líður allskonar yfir ævina.


En það sem við getum gert er að þjálfa okkur í því að vera í andlegu og líkamlega jafnvægi svo að við erum betur í stakkbúinn að takast á við allskonar aðstæður sem lífið hefur uppá að bjóða, við getum litið á það sem einhverskonar forvarnir og vopnabúr sem við sköpum með því að þjálfa okkur á líkama og sál.


Litli neikvæði púkinn kíkir í heimsókn


Þegar litli púkinn kíkir í heimsókn og ætlar að byrja að brjóta okkur niður þá vill hann fá mótspyrnuna okkar, og nærist af því að fá mótlæti og barsmíðar til baka en þegar við leyfum honum að bulla og við treystum því að hann sé aðeins kominn til að koma og fara, og við hlustum á okkar eigið innsæi sem eru ekki hugsanir okkar, þá staldrar hann ekki við lengi.


Það er líka gríðarlega mikilvægt að tala við þá sem við treystum um okkar líðan og láta allt flakka til þess að fá þá asðtoð sem við þurfum stundum til að slökkva á vælinu og ruglinu í hausnum á okkur sem getur verið svo hávært að við höndlum það ekki ein.


Það er líka ekkert meira en eðlilegt að fá aðstoð með andlega heilsu og í raun og veru miklu eðlilegra og mikilvægara af mínu mati að leita sér aðstoðar með andlega heilsu strax heldur en að byrja á því að leita sér af aðstoð með að breyta líkamanum, þar sem líkaminn fylgir þétt á eftir andlegu ástandi okkar og þegar við erum í andlegu jafnvægi erum við betur í stakk búinn að elska okkur eins og við erum og líkama okkar og fá viljann til að breyta því sem við viljum breyta með þeim tilgangi að vilja lifa innihaldsríkara lífi með heilbrigðan líkama og sál án allrar þráhyggju gagnvart útliti,hæð,þyngd osfrv.


Því heilbrigði er ekki það sem við sjáum heldur það sem við finnum og viljum og er gríðarlega einstaklingsbundið, þar sem við erum öll með ólíkan tilgang gagnvart okkar vegferð í lífinu og hvað við viljum fá útúr okkar lífi hér á jörðinni.




Það er allt í lagi að líða allskonar


  • Sannleikurinn er sá að sjálfsvíg hafa aukist gríðarlega síðan heimsfaraldurinn Covid 19 byrjaði.

  • Sannleikurinn er sá að fullt af fjölskyldum, einstaklingum og ungt fólk hefur misst vinnuna sína, fyrirtækin sín, húsnæði sín osfrv.

  • Sannleikurinn er sá að andleg og líkamleg veikindi hafa aukist gríðarlega.

  • sannleikurinn er sá að heimilisofbeldi hefur aukist.

  • Sannleikurinn er sá að fullt af fólki sem hefur verið edrú lengi hefur fallið í sinni edrúmennsku á þessu ári.

  • Sannleikurinn er sá að kvíði og andleg veikindi ungu kynslóðinnar hafa aukist gríðarlega á þessu ári.

Þetta er partur af því sem hefur verið lítið rætt um og hefur þá verið minna í sviðsljósinu.


Sannleikurinn er sá að okkur líður stundum illa og stundum líður okkur vel, sérstaklega á þeim tímum sem við lifum á núna þá hefur aldrei verið mikilvægara að standa saman og sýna hvort öðru kærleik og skilning án þess að dæma því við erum ekki hér til þess að sitja við dómaraborðið og slá niður hamrinum og dæma hvort annað, samt eigum við það auðvitað til í okkur, en áhrifin sem við höfum á hvort annað með okkar orðum,hugsunum og hegðun getur gert kraftaverk og það getur líka gert harmleik.


Verum meðvituð um það að við erum öll misjöfn og við getum alltaf valið okkar eigin viðhorf til lífsins með því að velja að fara útí daginn og trúa og treysta því að þessi dagur sé einstakur og skiptir máli og njóta augnablikina sem eru allt í kringum okkur á hverjum degi.


Það er allt í lagi að líða allskonar og það er eðlilegt að finna fyrir allskonar tilfinningum bæði erfiðum og auðveldum, það líður hjá og ef okkar líðan verður of erfið þá er eðlilegast í heimi að fá aðstoð og það er fullt af fólki og sérfræðingum sem eru tilbúnir að hjálpa okkur og leiðbeina okkur í velsældina sem við eigum skilið og finna það jafnvægi sem gerir okkur kleift að lifa lífinu til fulls.



Takk fyrir mig og fyrir að gefa ykkur tíma til að lesa þennan pistil :D


-Snæbjörn Þorgeirsson

 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page