top of page

Átak eða Lífstíll?

Hver er munurinn á því að fara í átak eða gera lífstílsbreytingu?


Að fara í átak


Við ættum öll að kannast við það á einhverjum tímapunkti að byrja í átaki hvort sem það er að hætta að drekka gos, hætta að borða hvítan sykur, grennast osfrv.


Oft er það að fara í ákveðið átak, ágætis skyndilausn og fín byrjun til þess að taka fyrstu skrefin að breyta um lífstíl.


En í flestum tilfellum eru þetta skammtímalausnir og við byrjum, náum ágætis árangri en gefumst fljótt upp því að við höfum bannað okkur eitthvað í ákveðinn tíma og við berjumst í bökkum við sjálfan okkur í allan þennan tíma í því að gefast ekki upp, og þegar það kemur af því að við hættum í ákveðnu átaki þá missum við algjörlega tökin og oft á tíðum brjótum við okkur niður fyrir það.


Samt sem áður er betra að gera eitthvað og læra af því en að gera ekki neitt og læra ekki neitt.


Lífstíll


Lifstílsbreyting á hinn boginn er allt annar vinkill þar sem við erum að gera breytingu á okkar líferni til frambúðar þar sem við sjáum framá að geta sett inn í okkar daglegu rútínu og vana og staðið við það án þess að brjóta okkur niður fyrir að standa ekki við ákveðið átak og vera ekki að skila árangri á hnefanum, heldur erum að kynnast okkur í leiðinni og okkar líkama og sál.


Við skipuleggjum okkur vel og gerum plan.


  1. Hvaða vana viljum við setja inní líf okkar og hvaða vana viljum við taka út?

  2. Viljum við hreyfa okkur meira?

  3. Hvenær viljum við hreyfa okkur?

  4. Hvernig hreyfingu viljum við stunda?

  5. Verum nákvæm og njótum þess að skapa nýjan lífstíl sem við erum að hanna fyrir okkur persónulega og er raunhæft fyrir okkar tilgang og sjáum framá að geta staðið við, og er ekki þráhyggja eða kvöð.

Byrjum smátt og tökum eitt skref í einu og á endanum verður margt smátt að einum heilum nýjum lífsstíl þar sem við munum sjá jákæðar breytingar hjá okkur sjálfum, og fólkinu í kringum okkur.


Skrifaðu niður í dagbók markmiðin þín og árangur á hverju kvöldi.


Sem dæmi:


  1. Æfa í 45 mínútur á morgnanna og síðan hugleiðsla í sturtunni í 15 mín.

  2. byrja vinnudaginn á því að ljúka erfiðasta verkefninu fyrst fyrir hádegi.

  3. Fasta til hádegis og borða frá 12:00 til 20:00 og endurtaka það síðan næsta dag.

  4. Taka frá klukkutíma power reload stund með börnunum mínum eftir vinnu.

Ég vaknaði í morgun tók 45 mín æfingu og síðan hentaði mér ekki að vera í sturtu og hugleiða svo ég nýtti 10 mín í að teygja og hugleiða eftir æfinguna.

Ég var miklu skýrari þegar ég fastaði til hádegis og lauk krefjandi verkefni fyrr en ég átti von á og gat nýtt tímann til hádegis í mikilvæga undirbúningsvinnu sem ég hafði verið búinn að fresta.

Ég kom heim eftir vinnu og var fullur af orku og naut þess að vera með börnunum mínum og síðan um kvöldið var ég orðinn syfjaður um 22:00 og svaf eins og ungabarn.


Þetta er lítið dæmi um það hvernig árangursdagbók gæti litið út.

Og gerir þetta ferli skemmtilegra og veitir manni tækifæri til þess að læra meira á sjálfan sig og þannig þróa nýjar venjur og finna fyrir árangri.


Deila árangrinum og ferlinu með öðrum í kringum sig.


Það er ákveðinn hvatning og setur jákvæða pressu á sjálfan sig að deila með öðrum því sem maður er að gera og árangrinum sem maður er að ná og það hefur aldrei verið auðveldara eins og í dag og með alla samfélagsmiðlanna á netinu.


Það er samt mikilvægt að velja sér vettvang þar sem fólk er á svipuðum stað og vera tilbúinn að taka við gagnrýni og allskonar almennum leiðindum því það er auðvelt að láta það á sig fá.

Það er líka hægt að snúa því við og nota það sem auka eldneyti á tankinn og fara fulla ferð áfram og ekki gefast upp þótt að á móti blási því þá verður sigurinn svo miklu sætari.


Þegar við deilum okkar ferðalagi og sögu áfram þá erum við að senda skilaboð og þannig hafa áhrif og hjálpa öðrum að gera það sama með því að sýna fordæmi með einlægni og heiðarleika í verkum okkar.


Velja sér miðlara/ráðgjafa og/eða sérfræðing á því sviði sem þú þarft aðstoð með.


Það er mikilvægt að viðurkenna það að maður þurfi stundum að fá aðstoð og þá leita að astoð hjá þeim sem eru með reynslu og þekkingu á ákveðnu sviði eftir því hverju þú leitar af.


Ef ég væri að leita mér af þjálfara til þess að verða sterkari og byggja upp vöðvamassa þá færi ég til manneskju eða þjálfara sem ég næ vel til og treysti auðvitað en það er líka mikilvægt að sá aðili hafi reynsluna og þekkinguna.


Þessi þjálfari væri búinn að byggja sig upp áður og þannig fá að kynnast ferlinu persónulega að verða sterkur og skilja þannig hvað það er að byggja upp vöðvamassa útfrá eigin reynslu þótt sá aðili sé ekki í augnablikinu vöðvamikill og sterkur þá hafi sá aðili gengið sama veg og ég vil ganga og þannig hafa reynsluna og þekkinguna.


Spurningin sem við ættum að spyrja okkur er ekki...Hvað vil ég? eða hvað er markmiðið mitt? heldur hvað finnst mér spennandi og veitir mér ánægju?


Heimildir fyrir þennan pistil koma frá eigin reynslu og þekkingu.

Tim ferris: https://tim.blog/, er innblásturinn minn í því að skilja muninn á lífstílsbreytingum og átaki og miklu meira tengt heilsu og andlegri vellíðan.

Síðan fékk ég heimildir frá eftirfarandi síðum:










 
 
 

Comments


Post: Blog2_Post

Subscribe Form

Thanks for submitting!

©2020 by overall life energy. Proudly created with Wix.com

bottom of page